Þýsk eldhúshönnun síðan 1892
Eldhúsmegin er fjölskyldufyrirtæki og hefur verið umboðsaðili Poggenpohl á Íslandi síðan 1994.
Poggenpohl var stofnað í Þýskalandi árið 1892 og á rætur að rekja til þýskrar trésmíðahefðar. Í meira en 130 ár hefur fyrirtækið sameinað vandað handverk, tæknilega nákvæmni, nýsköpun og efni í hæsta gæðaflokki við hönnun og framleiðslu eldhúseininga. Poggenpohl er elsti starfandi framleiðandi eldhúseininga í heimi og eitt af leiðandi nöfnum þýskrar eldhúshönnunar.
Poggenpohl býður sérsniðnar lausnir þar sem efnisval, útfærsla og virkni taka mið af rýminu og þörfum hvers viðskiptavinar. Hvert eldhús er hannað sem heild með áherslu á gæði, endingu og notagildi.
Hjá Eldhúsmegin leiðum við viðskiptavini í gegnum allt ferlið, frá fyrstu hugmynd og hönnun að fullbúnu Poggenpohl-eldhúsi.