Eldhúsmegin er fjölskyldufyrirtæki stofnað af Svölu Lárusdóttur Pitt og David Pitt árið 1994 og hefur verið umboðsaðili Poggenpohl á Íslandi í yfir 25 ár.
Poggenpohl er elsti starfandi framleiðandi eldhúseininga í heiminum og var stofnað í Þýskalandi árið 1892 af Friedemir Poggenpohl með það að leiðarljósi “að gera eldhúsið betra”. Poggenpohl á rætur að rekja til þýskrar trésmíðahefðar en í meira en 130 ár hefur fyrirtækið sameinað vandað handverk, tæknilega nákvæmni, nýsköpun og efni í hæsta gæðaflokki við hönnun og framleiðslu eldhúseininga.
Árið 1928 kynnti Poggenpohl “The Reform Kitchen” eða “Umbótareldhúsið” sem er talið grunnurinn að nútímaeldhúsinu eins og við þekkjum það í dag. Þar var lagður grunnur að eldhúsi úr tengdum einingum, veggskápum og vel skipulögðum innri skápum með góðu notagildi.
Poggenpohl býður sérsniðnar lausnir þar sem efnisval, útfærsla og virkni taka mið af rýminu og þörfum hvers viðskiptavinar með langvarandi endingartíma og gæði að leiðarljósi. Öll eldhús eru framleidd í Herford, Þýskalandi.
Hjá Eldhúsmegin leiðum við viðskiptavini í gegnum allt ferlið, frá fyrstu hugmynd og hönnun að fullbúnu Poggenpohl-eldhúsi.
Höfuðstöðvar Poggenpohl í Herford, Þýskalandi 1941